Hvetur til varkárni í umferðinni

Lögreglan fylgist með umferð á Suðurlandsvegi.
Lögreglan fylgist með umferð á Suðurlandsvegi. mbl.is/Árni Sæberg

Stjórn Umferðarráðs segir, að með tilkomu Landeyjarhafnar megi gera ráð fyrir aukinni umferð á Suðurlandsvegi, og þá ekki síst ungs fólks á leið til og frá Vestmanneyjum um verslunarmannahelgina. Beinir stjórnin  því sérstaklega til vegfarenda á þessari leið að aka varlega og sýna tillitssemi.

Í ályktun stjórnar ráðsins segir, að þessi árstími hafi oft reynst erfiður í umferðinni og megi nefna að árið 2006 létust 8 einstaklingar í umferðarslysum í ágústmánuði einum saman, þar af 5 sem voru 26 ára eða yngri.

„Mikill árangur hefur náðst í fækkun umferðarslysa á undanförnum árum, en þrátt fyrir það verðum við að halda vöku okkar og ekki missa sjónar á því að aldrei má slaka á í umferðaröryggisstarfinu. Ísland má alls ekki við því að missa fólk í bílslysum.  Við verðum að taka höndum saman og gera allt sem í okkar valdi stendur til að koma í veg fyrir ótímabær dauðsföll og limlestingar í umferðinni," segir í ályktun ráðsins. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert