Beaty: Vilja ekki hætta við
Magma Energy hótar því að seinka eða hætta við stærstu erlendu fjárfestinguna á Íslandi frá bankahruninu. Þetta kemur fram á vef Financial Times. Þar er haft eftir Ross Beaty, forstjóra Magma, að félagið vilji ekki hætta við en það hafi skyldum að gegna gagnvart hluthöfum.
Til stendur að ljúka yfirtöku Magma á HS orku í vikunni, samkvæmt vef Financial Times en vegna ákvörðunar stjórnvalda um að setja rannsókn af stað varðandi kaupin þá sé samningurinn í uppnámi.
Hélt að fjárfestingu Magma yrði fagnað
Ross Beaty segir í viðtali við FT að Magma geti enn reynt að ljúka samningnum líkt og til stóð en félagið íhugi stöðu sína, hvort seinka eigi kaupunum eða hætta við þau vegna pólitískrar óvissu.
„Við viljum ekki láta okkur hverfa. En við erum með hluthafa sem eru að verða ansi vonsviknir með það sem er að gerast," segir Beaty við FT.
Beaty segist hafa talið að fjárfestingu Magma yrði fagnað á sama tíma og efnahagsörðugleikar ríki á Íslandi. Þess í stað hafi verið ráðist á fyrirtækið og það ásakað um að ætla sér að ræna og rupla náttúruauðlindum og að hafa nýtt sér skúffufyrirtæki í Svíþjóð til þess að fara á svig við reglur sem banna fjárfestingu fyrirtækja í ríkjum fyrir utan evrópska efnahagssvæðið í íslenskum orkufyrirtækjum.
Í frétt FT er vitað til orða tónlistarkonunnar Bjarkar Guðmundsdóttur sem sagði nýverið í samtali við FT að Íslendingar óttuðust að vera þriðja heims þrælar með því að selja burt allar náttúruauðlindir sínar.
Magma gert að blóraböggli fyrir allt sem miður fór
Segir Beaty að Magma sé gert að blóraböggli fyrir alla þá slæmu viðskiptahætti sem leiddu til fjármálahrunsins á sínum tíma. Fyrirtækið þurfi að gjalda fyrir þann mikla ótta og vantraust sem myndaðist í kjölfar hrunsins.
Hann varar við því að fjandskapur í garð Magma geti fælt aðra útlenda fjárfesta frá á sama tíma og Íslendingar strita við að byggja upp efnahag landsins.
Bloggað um fréttina
-
Axel Jóhann Axelsson Tekst VG að eyðileggja alla atvinnuuppbyggingu í landinu? -
Úrsúla Jünemann Ross Beaty örvæntingarfullur? -
Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir Þessi Aðferðarfræði... -
Guðjón Sigþór Jensson Hvað er Magma Energy? -
Jón Baldur L'Orange Ræður Verslunaráðið ennþá för? -
Páll Vilhjálmsson Subbufélagsskapur Magma -
Lúðvík Júlíusson Beaty farinn að örvænta? -
Jón Valur Jensson Hún elskar mig, hún elskar mig ekki ... -
Viggó Jörgensson Sturlungaöld hin síðari -
Axel Jóhann Hallgrímsson Já og fara svo, Magma -
Hafþór Baldvinsson Magma flækt í lygavef - með önnur verkefni s.s. úran, ... -
Árni Þór Björnsson Spurning: Hvað þarf af erlendum fjárfestum ? -
Reynir W Lord Sama er mér farið bara...
Innlent »
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 17. maí 2010, Innlent Ræddu við lífeyrissjóði
- Miðvikudagur, 21. júlí 2010, Innlent Beaty svarar Björk
- Föstudagur, 19. nóvember 2010, Innlent Segja Beaty hóta í kjölfar viðtals við Björk
- Þriðjudagur, 25. ágúst 2009, Innlent Upplýsandi fundur með Magma
- Þriðjudagur, 2. ágúst 2011, Innlent Beaty fær lán endurgreitt
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































