Ranglega haft eftir Björk
Björk Guðmundsdóttir segir rangt haft eftir sér í frétt AFP í gær, þar sem fram kom að hún teldi Magma Energy vinna með Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og ágirnast allar orkuauðlindir landsins.
Hún segist einungis hafa svarað tveimur spurningum um Magmamálið sem hafi læðst inn á blaðamannafundi vegna frumsýningar á kvikmyndinni um Múmínálfana.
„Ég sagði að það hefði oft gerst að Magma komi til landa sem hafi þurft á hjálp AGS að halda. Löndin væru þá á barmi gjaldþrots og Magma keypti aðgang að auðlindum á mjög lágu verði.“
Þá segir söngkonan að blaðamanni hljóti að hafa misheyrst, hún hafi ekki sagt að Magma hefði sýnt fimm orkufyrirtækjum áhuga, heldur fimm öðrum stöðum á landinu.
Í yfirlýsingu til mbl.is segir Björk að hún hafi svarað spurningum 200 blaðamanna um Múmínálfana í 4 klukkustundir og svör hennar um Magmamálið hafi skolast til.
Yfirlýsing Bjarkar:
„Af gefnu tilefni vil ég leiðrétta nokkra hluti.
Í gær var ég í Helsinki og svaraði spurningum 200 blaðamanna um múmínálfanna í 4 klukkustundir.
Á blaðamannafundinum læddust inn 2 spurningar um Magmamálið.
Þegar ég síðan kíkti á netið í dag sá ég að sum svörin höfðu skolast til.
Málið er nógu flókið og umdeilt fyrir, að ekki sé farið með rangt mál í ofanálag.
Hér koma leiðréttingar á aðal misskilningunum:
1. Ég sagði ekki að ég teldi að Magma og AGS væru að vinna saman. Ég sagði að það hefði oft gerst að Magma komi til landa sem hafi þurft á hjálp AGS að halda. Löndin væru þá á barmi gjaldþrots og Magma keypti aðgang að auðlindum á mjög lágu verði.
2. Ég sagði ekki að Magma ætlaði að kaupa upp allar orkuauðlindir landsins. Ég sagði að Magma hefði haft samband við allaveganna fimm aðra staði á landinu. Og var þá að tala um sýndan áhuga fyrirtækisins á Hrunamannaafrétti, Öræfum, Reykjahlíð, Vogum, Bjarnarflagsvirkjun, Kerlingafjöllum og Krísuvík. Mér sýnist að “5 places” hafi breyst í “5 energy companies”.
Með hlýju og fyrirfram þökk.
Björk.“
Bloggað um fréttina
-
Ómar Geirsson Björk heldur sig við staðreyndir. -
Guðni Karl Harðarson Magnað mál -
Magnús Helgi Björgvinsson Hvaða lönd er þetta sem Björk er að tala um? -
Jón Ingi Cæsarsson Margir reyndu að bakka upp bullið og fögnuðu yfirlýsingum. -
Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir Magma Energy... -
Svanur Gísli Þorkelsson Heyrði blaðamaðurinn það sem Björk hugsaði? -
Halldór Halldórsson Alltaf misskilin! -
Sigurður Hrellir Lobbi -
Sigurður Haraldsson Hver togaði nú í spottan? -
Axel Jóhann Axelsson Áhangendur vörðu ranghermið
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 3. ágúst 2010, Innlent Björk: Magma vinnur með AGS
- Sunnudagur, 20. mars 2011, Innlent Hafnaði boði um að segja af sér
- Laugardagur, 22. janúar 2011, Innlent Vilji til að láta sölu á HS Orku ganga til baka
- Miðvikudagur, 21. júlí 2010, Innlent Beaty svarar Björk
- Föstudagur, 13. ágúst 2010, Innlent Rannsóknarleyfi ekki yfirfæranleg
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































