Tveir dópaðir á sama bílnum

Lögreglan á vettvangi.
Lögreglan á vettvangi. Ljósmynd/JHJ

Lögregla stöðvaði ökumann grunaðan um akstur undir áhrifum fíkniefna innanbæjar á Selfossi á þriðja tímanum í dag. Ökumaður var fluttur til sýnatöku á lögreglustöð.

Um hálfri annari klukkustund síðar stöðvuðu lögreglumenn sama bíl aftur, þar sem annar maður nú undir stýri. Sá reyndist einnig vera undir áhrifum fíkniefna.

Í nótt sem leið stöðvuðu lögreglumenn ökumann innanbæjar á Selfossi eftir nokkra eftirför, þar sem hann ók um íbúðagötur vel yfir löglegan hámarkshraða. Sá var ölvaður eins og sást þegar hann kom á lögreglustöð hvar áfengismagn í blóði hans var mælt.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert