Hafnarstræti lokað fyrir bílum

Hafnarstræti.
Hafnarstræti. mbl.is/RAX

Borgarráð samþykkti á fundi sínum í morgun að Hafnarstræti verði tímabundið lokað fyrir bílaumferð og helgað gangandi og hjólandi vegfarendum.

Að sögn skrifstofu borgarstjóra barst beiði frá verslunar- og þjónustuaðilum við götuna þar sem þeir óskuðu eftir því að gatan yrði gerð að göngugötu til 15. september og hafa þeir  fengið leyfi til þess að skapa skemmtilega útistemmningu í götunni. Lokunin nær  frá gatnamótum við Pósthússtræti og að gatnamótum við Tryggvagötu. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert