Sigurður mættur í yfirheyrslu
Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings, mætir í yfirheyrslu hjá embætti sérstaks saksóknara í morgun mbl.is/Ernir Eyjólfsson
Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings, er mættur í húsnæði embættis sérstaks saksóknara en hann verður yfirheyrður þar í dag. Sigurður kom til landsins í gær, en meira en þrír mánuðir eru síðan saksóknari óskaði eftir að hann kæmi til landsins í skýrslutöku. Kom Sigurður á skrifstofu embættisins klukkan níu.
Hann sagði við fréttamenn við komuna að hann hafi komið til skýrslutöku nú þar sem hann hafi talið þetta rétta tímann. Sigurður segist vera með hreina samvisku og hann viti ekki hve lengi hann dvelji á landinu.
Alþjóðalögreglan Interpol lýsti eftir Sigurði í maí vegna þess að hann sinnti ekki óskum sérstaks saksóknara um að koma í skýrslutöku. Yfirlýsingin hefur nú verið fjarlægð af vef Interpol.
„Handtökuskipunin var gefin út þar sem hann sinnti ekki kvaðningu, en ætli menn sér að sinna kvaðningu þarf ekki að handtaka þá,“ sagði Ólafur Þ. Hauksson, sérstakur saksóknari, í samtali við mbl.is. Hann vill að öðru leyti ekki tjá sig frekar um málið á þessu stigi.
Gestur Jónsson, lögmaður Sigurðar, vildi í gær ekki tjá sig um hvort gert hefði verið sérstakt samkomulag við Sigurð áður en hann kom heim. Hann staðfesti einungis að skýrsla yrði tekin af Sigurði í dag.
Þrír af fyrrverandi stjórnendum Kaupþings voru handteknir í maí í kjölfar þess að þeir voru boðaðir í yfirheyrslur. Þeir sátu í gæsluvarðhaldi um tíma í tengslum við rannsókn málsins.
„Mjög umfangsmikil, kerfisbundin og skipulögð.“ Þannig lýsti sérstakur saksóknari meintri markaðsmisnotkun Kaupþingsmanna í greinargerð með gæsluvarðhaldskröfu yfir Magnúsi Guðmundssyni, fyrrverandi forstjóra Kaupþings í Lúxemborg, þegar hún var lögð fram í maí. Rannsóknin varðar grun um skjalafals, auðgunarbrot, brot gegn lögum um verðbréfaviðskipti – m.a. markaðsmisnotkun – og brot gegn hlutafélagalögum.Bloggað um fréttina
-
Ólafur Ragnarsson ""mættur og VEL undirbúinn"" -
Frikkinn Hvílík "prímadonna " Sigurður -
Sigurður Haraldsson Sýndarmennska! -
Axel Jóhann Axelsson Tilgangslaus yfirheyrsla yfir Sigurði Einarssyni?
Innlent »
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 18. ágúst 2010, Innlent Sigurður Einarsson kominn til landsins
- Miðvikudagur, 18. ágúst 2010, Innlent Yfirheyrsla í fyrramálið
- Fimmtudagur, 19. ágúst 2010, Innlent Lengd yfirheyrslunnar óráðin
- Þriðjudagur, 18. maí 2010, Innlent Handtökuskipun alltof harkaleg
- Þriðjudagur, 11. maí 2010, Innlent Interpol lýsir eftir Sigurði
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“






































