„Brotaþoli getur aldrei borið ábyrgð á ofbeldisverknaði“
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
„Ég er enn þeirrar skoðunar að hver og einn beri ábyrgð á að gæta sín varðandi neyslu [vímugjafa]. Það er vegna þess að þegar manneskja getur ekki spornað við verknaði vegna ástands síns þá eru til menn sem notfæra sér það. Manneskja sem er t.d. ofurölvi ber ekki neina ábyrgð á framkvæmd brotsins – nauðgun eða misneytingu,“ sagði Björgvin Björgvinsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglu höfuðborgarsvæðisins.
Björgvin vék úr embætti yfirmanns kynferðisbrotadeildar R-3 sl. þriðjudag að eigin ósk. Ástæðan var hörð viðbrögð við ummælum sem eftir honum voru höfð í viðtali í DV á mánudag. Hann telur að þau hafi verið misskilin. Þeir sem til sín þekki viti hver afstaða hans sé og hvern mann hann hafi að geyma.
Telur ummælin mistúlkuð
Björgvin vitnaði til rannsóknar Agnesar Gísladóttur á komum á Neyðarmóttöku vegna nauðgana á árunum 1998-2007. Þar kom m.a. fram að um 70% þolenda nauðgana höfðu neytt áfengis áður en ofbeldið átti sér stað. Hlutfall þolenda sem voru í áfengisdái eða með verulega skerta meðvitund þegar þeim var nauðgað jókst úr tæpum 36% á árunum 1998-2000 í tæp 50% að meðaltali 2003-2007. Björgvin kvaðst hafa haft þessa þróun í huga þegar hann ræddi við DV. Ummælin sem ollu viðbrögðunum hörðu voru: „Fólk ætti kannski að líta oftar í eigin barm og bera ábyrgð á sjálfu sér.“Björgvin segir að þessi orð hafi verið túlkuð svo að hann telji að fórnarlamb eða brotaþoli beri ábyrgð á ofbeldinu eða afbrotinu.
„Það getur aldrei orðið og það er grundvallaratriði í rannsókn sem er gerð hjá lögreglu og ákæruvaldinu,“ sagði Björgvin. „Mér fannst viðbrögðin harkaleg, sérstaklega af því að þau voru byggð á misskilningi. Brotaþoli getur aldrei borið ábyrgð á ofbeldisverknaði – kynferðislegri misneytingu eða nauðgun.“
Ýtarlega er rætt við Björgvin Björgvinsson í Morgunblaðinu í dag.
Bloggað um fréttina
-
drilli FÓLK ER FÍFL ! -
Gísli Sigurður Rangt... -
Ásdís Sigurðardóttir Áskil mér allan rétt til að vera sammála Björgvin... -
Starbuck Lögreglumaður lýgur -
Axel Þór Kolbeinsson Einföld samlíking -
Theódór Norðkvist Kattarþvottur lögregluforingjans heldur áfram -
Anna Sigríður Guðmundsdóttir Og hver ber ábyrgð á stjórnleysi áfengis og fíkniefna hér ... -
-
Jón Baldur L'Orange Vinnubrögð til fyrirmyndar
Innlent »
- Þóra opnar skrifstofu
- Veðrið leikur við landsmenn
- Lettneska konan enn ófundin
- Við akstur undir áhrifum kannabis
- Gleymdist að slökkva á eldavélinni
- Fjölmennasti hópurinn frá upphafi
- Voru frelsinu fegnar
- Margir sóla sig í sundi í dag
- „Svona sending er ný reynsla“
- „Ég reyni að lifa lífinu til fulls“
- „Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“
- Par villtist á leiðinni í Þórsmörk
- 65 brautskráðir á Sauðárkróki
- „Þú ert númer 44 í röðinni“
- Vatn flæddi yfir veginn
- Bilun í netkerfi Símans
- Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín
- Vissu ekki hver hefði ekið
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 19. maí 2010, Innlent Sakaður um að nauðga karlmanni
- Föstudagur, 11. febrúar 2011, Innlent Hreinsaður af ásökunum um nauðgun
- Miðvikudagur, 7. september 2011, Innlent Kringumstæður ekki voveiflegar
- Föstudagur, 8. október 2010, Innlent Skoðar meðferð kynferðisbrota
- Mánudagur, 20. júní 2011, Innlent Kröfu vísað frá Hæstarétti
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju

































