Handteknir vegna fíkniefnamála

Nokkur fíkniefnamál komu til kasta lögreglu á Menningarnótt. Fjórir karlar á aldrinum 16-30 ára voru handteknir í miðborginni í nótt. Þeir eru allir grunaðir um fíkniefnamisferli en á þremur þeirra fundust fíkniefni. Um var að ræða bæði amfetamín og maríjúana.

Þá var karlmaður um tvítugt einnig handtekinn í miðborginni í gærdag en í fórum hans fundust sömuleiðis fíkniefni, að sögn lögreglu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert