Bændur mótmæla 9% skerðingu

Bændur vilja verja búvörusamningana sem gerðir voru á síðasta ári.
Bændur vilja verja búvörusamningana sem gerðir voru á síðasta ári. mbl.is/Árni

Útgjöld til landbúnaðarmála verða að lækka á næsta ári eins og aðrir útgjaldaliðir ríkisins, að sögn Steingríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra. Bændur standa því frammi fyrir 9% lækkun en beingreiðslur til þeirra eru stærsti liðurinn.

Bændasamtökin hafa mótmælt þessari skerðingu. Ríkið hafi gert samning við bændur á síðasta ári og við hann verði að standa.

„Við höfum mótmælt þessari kröfu og bent á að samningurinn hafi farið í atkvæðagreiðslu bæði á Alþingi og meðal bænda. Allar þessar forsendur lágu fyrir þegar samningurinn var gerður,“ segir Haraldur Benediktsson, formaður BÍ, í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert