Geirfuglum fjölgar

Stytta Todds McGrains var afhjúpuð í Reykjanesbæ í gær.
Stytta Todds McGrains var afhjúpuð í Reykjanesbæ í gær. mbl.is/Víkurfréttir

Bronsstytta af geirfugli eftir bandaríska myndlistarmanninn Todd McGrain var afhjúpuð í Reykjanesbæ í gær.

Styttan stendur á Valahnúki og horfir fuglinn til Eldeyjar en talið er að síðasti geirfuglinn hafi verið drepinn á þeirri eyju hinn 3. júní í 1844.

Hafþór Yngvason, safnstjóri Listasafns Reykjavíkur, er ekki sáttur við verkið og segir hugmyndina að því hættulega nálægt verki Ólafar Nordal frá árinu 1998, styttu af geirfugli sem stendur í flæðarmálinu við Skerjafjörð í Reykjavík og horfir í átt að hafi. „Það er náttúrlega bara neyðarlegt, burtséð frá öllu siðferði og lögum, fyrir listamann að gera eitthvað svona,“ segir Hafþór um verk McGrains, í Morgunblaðinu í dag.


Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert