Sagðir misnota stöðu sína í stjórn AGS
Þeirri skoðun var lýst á Alþingi í dag, að Bretar og Hollendingar misnotuðu aðstöðu sína í stjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins til að þrýsta á Íslendinga til að samþykkja ýtrustu kröfur í Icesave-deilunni.
Lilja Mósesdóttir, þingmaður Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs, sagði, að fram hefði komið í Morgunblaðinu í vikunni, að Bretar og Hollendingar hefðu sýnt mikla óbilgirni á fundum um Icesave í síðustu viku. Nú standi fyrir dyrum þriðja endurskoðun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á efnahagsáætlun Íslands og það gæti skýrt þessa óbilgirni Breta og Hollendinga.
Sagði Lilja, að enn á ný mætti eiga von á því, að Bretar og Hollendingar notuðu stjórnarsetu sína í Alþjóðagjaldeyrissjóðnum til að þrýsta á Íslendinga að ganga að ýtrustu kröfum sínum.
Bjarni Benediktsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagði að stóra spurningin væri, hvort stjórnarflokkarnir ætluðu að beygja sig undir kröfur Breta og Hollendinga. Það væri ekki stefna Sjálfstæðisflokksins. „Nú hefur þegar verið boðin ríkisábyrgð og vextir. Ef það dugar ekki Alþjóðagjaldeyrissjóðnum má hann fara héðan út," sagði Bjarni.
Pétur H. Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagði að fjármálaráðherra hefði í Icesave-málinu gefist upp aftur og aftur og aftur og látið af einhverjum skrítnum ástæðum hagsmuni Íslands fyrir róða.
Pétur sagði, að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefði átt hjálpa Íslendingum en því miður hefðu Bretar og Hollendingar misnotað aðstöðu sína hjá sjóðnum til að kúga Íslendinga. Þessu ættu íslensk stjórnvöld að lýsa yfir opinberlega.
„Við eigum ekki að láta kúga okkur til að samþykkja Icesave; það er allt of dýrt verð," sagði Pétur. „Ég skora á ríkisstjórnina að standa í lappirnar og samþykkja ekki Icesave nema kannski sem okkar framlag til að halda uppi trausti á bankakerfið í Evrópu. Það yrði þá okkar velvilji og maður borgar að sjálfsögðu ekki vexti þegar maður er með velvild," sagði Pétur.
Bloggað um fréttina
-
Kristinn Karl Brynjarsson Pólitísk þráhyggja Samfylkingar, gegn vilja þjóðarinnar. -
Ólafur Ingi Hrólfsson Fyrir dóm -
Auðun Gíslason Menn lesi ræðu Bjarna Ben frá 28. nóvember 2008 í ... -
Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir Þjóðin er búin að segja orð sitt... -
Þjóðarheiður GETA EKKI STAÐIÐ Í LAPPIRNAR.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 14. ágúst 2009, Innlent Veikir fyrirvarar verri en engir
- Miðvikudagur, 18. nóvember 2009, Innlent Klár og hrein tengsl Icesave og ESB
- Þriðjudagur, 16. nóvember 2010, Innlent Bretar og Hollendingar eru farnir að ókyrrast
- Mánudagur, 8. febrúar 2010, Innlent Kröfðust pólitískra sátta
- Fimmtudagur, 7. janúar 2010, Innlent Joly harðorð í garð Hollendinga
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































