Aðalfundur Samfylkingarinnar í Mosfellsbæ hafnar með öllu svokallaðri „samningaleið“ sem starfshópur um endurskoðun fiskveiðistjórnunarkerfisins hefur nýlega lagt fram.
Þetta kemur fram í ályktun frá félaginu.
Samfylkingarfélagið í Mosfellsbæ krefst þess að framkomnar tillögur starfshópsins verði lagðar undir þjóðaratkvæði. Aðeins með því móti er hægt að fá raunverulegan vilja þjóðarinnar til þessa máls.