Hörð gagnrýni á einkavæðinguna
Unnur Brá Konráðsdóttir, varaformaður þingamannanefndarinnar, segir að í sameiginlegri ályktun þingmannanefndarinnar sé að finna harða gagnrýni á hvernig var staðið að einkavæðingu bankanna. Hún segist ekki sjá að frekari rannsókn á þessu máli skili neinu.
Unnur vakti í ræðu sinni á Alþingi athygli á niðurstöðu þingmannanefndarinnar um einkavæðingu bankanna. Þar segir: „Það er mat þingmannanefndarinnar að skýrsla rannsóknarnefndarinnar sé áfellisdómur yfir verkferlinu við sölu ríkisbankanna og vinnubrögðum þeirra ráðherra sem voru í forsvari við einkavæðingu bankanna.
Þingmannanefndin tekur undir ályktanir rannsóknarnefndarinnar að Alþingi hafi ekki sett framkvæmdarvaldinu nægilega skýr skilyrði við einkavæðingu Búnaðarbanka Íslands og Landsbanka Íslands. Einnig hafi verið gerð stór mistök af hálfu framkvæmdarvaldsins í ferli einkavæðingar bankanna þegar fallið var frá upphaflegum kröfum um dreifða eignaraðild, faglega reynslu og þekkingu við val á kaupendum og þegar bankarnir voru báðir seldir á svipuðum tíma við erfiðar markaðsaðstæður.“
Unnur Brá sagði að rannsóknarskýrsla Alþingis hefði skoðað afmarkaða þætti í einkavæðingu bankanna. Ríkisendurskoðun hefði einnig skoða einkavæðingu. Hún sagði að fulltrúar Sjálfstæðisflokksins væru þeirrar skoðunar að frekari rannsókn á þessu máli skiluðu engu. Hún gagnrýndi ennfremur orð Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra að ef þingmannanefndin rannsakaði ekki einkavæðingu bankanna yrði að samþykkja sérstaka tillögu um að slík rannsókn færi fram. Hún sagði að með þessu hefði framkvæmdavaldið reynt að hafa áhrif á störf nefndarinnar.
Unnur Brá sagði mikilvægt að horfa til framtíðar, en þingmannanefndin leggur til að Alþingi lögfesti rammalöggjöf um sölu og einkavæðingu ríkisfyrirtækja og eftirlitshlutverk Alþingis sé þar tryggt. „Það er sérstaklega mikilvægt í ljósi þess að á næstu árum og áratugum er stefnt að því að selja og/eða einkavæða fyrirtæki sem hafnað hafa í ríkiseigu vegna bankahrunsins. Jafnframt telur þingmannanefndin að ríkisstjórn hvers tíma þurfi að marka opinbera stefnu um hvort og þá með hvaða hætti selja eigi og/eða einkavæða ríkisfyrirtæki.“
Unnur Brá sagði að ef einkavæðing bankanna yrði rannsökuð frekar þyrfti líka að rannsaka þá einkavæðingu á bönkunum sem fram fór eftir hrun.
Bloggað um fréttina
-
Rannsóknarskýrslan Vítaverðir starfshættir Ráðherranefndar um einkavæðingu -
Ólafur Ragnarsson "hörpuleikararnir við völlinn"
Innlent »
- Lýsa eftir ræningja
- Svartir sauðir á hálendinu
- Mæling á PSA ekki áreiðanleg
- Vilja starfshóp um póstverslun
- Icesave hefði sett Ísland á hausinn
- Tíðinda að vænta innan tíu daga
- Ítarlegar upplýsingar um húsaleiguverð
- Lagði mat á vegslóða
- Rannsókn nauðgunarmála lokið
- Óljóst um hvað málið snýst
- Selur fylgist með skútunum
- Ráðgjöf veitt á Atvinnutorgi
- Þremur sagt upp hjá Becromal
- Vaxandi hríðarveður á Vestfjörðum og Norðurlandi
- Reglur ræddar í Hafnarfirði
- Rán framið á Akureyri
- WOW air notar Airbus-vélar
- Skoði betur kaflann um forsetann
- Draga hækkun til baka
- Gagnrýnir skamman fyrirvara
- Klára málið í næstu viku
- Segir rangt farið með málsatvik
- Börn og unglingar í óhamingjugildru
- Afgreiðsla ekki í samræmi við lög
- Baðst afsökunar fyrir 12 árum
-
Hundarnir finna dópið strax
- Ummerki um olíu frá Júratímabilinu
- Gerir alvarlegar athugasemdir
- D-vítamínbætt mjólk á markað
- Telja neytendur eiga betri rétt
- Unnur Brá: Eina lausnin?
- Tæplega helmingur ók of hratt
- Umgekkst vændiskonur í opinberum ferðum
- Vatnsleki vegna ræktunar
- „Ég er komin með nóg“
- Allt að 25% verðmunur
- „Pawel virðist eitthvað misskilja ferlið“
- Perlan góður kostur fyrir safn
- Með kannabisgræðlinga í bíl
- Rammaáætlunin tilbúin á næstu dögum
- Efla þarf rannsóknir á höfunum
- Bað hana að leyna bréfunum
- Málið var kært, en fellt niður
- Óvíst um fordæmisgildi
- Farþegum með Norrænu fækkaði
- Undir áhrifum á ótryggðum bíl
- Ólafur Ingi: Fagstétt útrýmt?
- Ný stjórn Röskvu
- Innkalla rjómasprautu
- Geir Jón gefur kost á sér
- Má gera athugasemdir í næsta blaði
- Kærir Snorra til lögreglu
- Hvessir undir Eyjafjöllum
- Jón Baldvin biðst afsökunar á bréfi
- 5,5 laxar í þúsund tonnum makríls
- Stöðvarhúslóð í Bjarnarflagi könnuð
- Brotist inn í Húsaskóla
- Þvottavélin lokaði hurðinni
- Borgarstarfsmenn ósáttari
- Ekkert samráð um frumvarpið
- Forstjóra FME sagt upp störfum
- Stjórnlagaráð
- Umfjöllun í Nýju lífi um bréf Jóns Baldvins Hannibalssonar
- Fjárlagafrumvarp 2011
- Grunnskólakennari fordæmir samkynhneigð
Svipaðar fréttir
- Sunnudagur, 12. september 2010, Innlent Ekki meirihluti fyrir rannsókn á einkavæðingu
- Sunnudagur, 26. september 2010, Innlent Áfellisdómur yfir stjórnvöldum og stjórnmálamönnum
- Mánudagur, 27. september 2010, Innlent Vill rannsókn á einkavæðingu banka
- Föstudagur, 2. september 2011, Innlent Heimild ráðherra til að selja verði afnumin
- Mánudagur, 13. september 2010, Innlent Mistök gerð við einkavæðinguna
-
Perlan fái hlutverk við hæfi
-
Leita enn að líkum um borð
-
Viktoría fer heim af spítalanum
-
Hundarnir finna dópið strax
-
Umferðamiðstöð sprengd í Peshawar
-
Færir Advania forystu?
-
Fangaverðir hjálpuðu föngum að flýja
-
Fundu lík fimm ára stúlku
Háskólakennsla
Forseti Verkfræði- og náttúruvísindasvið...




































