Úrskurðaður í gæsluvarðhald
Dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur féllst í dag á kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um að karlmaður, sem handtekinn var í gær vegna hótana í garð tveggja feðga af erlendu bergi brotnu, sæti gæsluvarðhaldi til föstudags á grundvelli rannsóknarhagsmuna.
Maðurinn er grunaður um að hafa hótað feðgum af kúbverskum uppruna lífláti og valdið eignaspjöllum á heimili þeirra. Maðurinn er á fertugsaldri og hefur oft komið við sögu lögreglunnar, meðal annars vegna svonefndra handrukkana.
Feðgarnir fóru úr landi í gær vegna málsins en skemmdarverk voru framin á heimili þeirra á laugardag og þeim hótað lífláti. Báðir eru þeir íslenskir ríkisborgarar, en kveikja málsins virðist vera sú að pilturinn hefur átt vingott við íslenska stúlku.
Fram hefur komið, að samband ungmennanna hafi vakið upp annarleg viðhorf og
kynþáttafordóma, meðal annars í Menntaskólanum í Kópavogi þar sem stúlkan stundar nám.
Fram kom í fréttum Ríkisútvarpsins í hádeginu í dag, að skólayfirvöld hafi skorist í leikinn og rætt alvarlega við þá sem fyrir
kynþáttafordómunum stóðu. Haft var eftir aðstoðarskólastjóranum, að unglingarnir, sem
eru 16 ára, hafi beðist afsökunar á framgöngu sinni og lofað að láta af
henni. Síðar hafi málin færst út fyrir skólalóðina þar sem fullorðið
fólk fór að taka þátt í kynþáttahatrinu.
Tveir menn voru handteknir í gær vegna málsins, annar þeirra er á aldur við unglingspiltinn en hinn
er nokkuð eldri að sögn Hákonar Sigurjónssonar, lögreglufulltrúa. Hákon
segir að ekki hafi verið um líkamsmeiðingar að ræða heldur fyrst og
fremst hótanir í garð piltsins vegna tengsla hans við íslenska stúlku.
„Svo voru framin skemmdarverk heima hjá þessum feðgum að því er virðist eingöngu til þess að vekja ótta hjá þeim," segir Hákon.
Feðgarnir tóku þá ákvörðun í gær að flýja land, að minnsta kosti um tíma, þar sem þeir treystu sér ekki til að vera hér öryggis síns vegna á meðan málið er óleyst.
Bloggað um fréttina
-
-
Jónas Egilsson Árás á íslenskt samfélag! -
Hörður B Hjartarson Hafi þessir feðgar "brotið" það eitt -
P.Valdimar Guðjónsson Varla nokkur hissa.
Innlent »
- Telja neytendur eiga betri rétt
- Unnur Brá: Eina lausnin?
- Tæplega helmingur ók of hratt
- Umgekkst vændiskonur í opinberum ferðum
- Vatnsleki vegna ræktunar
- „Ég er komin með nóg“
- Allt að 25% verðmunur
- „Pawel virðist eitthvað misskilja ferlið“
- Perlan góður kostur fyrir safn
- Með kannabisgræðlinga í bíl
- Rammaáætlunin tilbúin á næstu dögum
- Efla þarf rannsóknir á höfunum
- Bað hana að leyna bréfunum
- Málið var kært, en fellt niður
- Óvíst um fordæmisgildi
- Farþegum með Norrænu fækkaði
- Undir áhrifum á ótryggðum bíl
- Ólafur Ingi: Fagstétt útrýmt?
- Ný stjórn Röskvu
- Innkalla rjómasprautu
- Geir Jón gefur kost á sér
- Má gera athugasemdir í næsta blaði
- Kærir Snorra til lögreglu
- Hvessir undir Eyjafjöllum
- Jón Baldvin biðst afsökunar á bréfi
- 5,5 laxar í þúsund tonnum makríls
- Stöðvarhúslóð í Bjarnarflagi könnuð
- Brotist inn í Húsaskóla
- Þvottavélin lokaði hurðinni
- Borgarstarfsmenn ósáttari
Miðvikudagur, 22.2.2012
- Þingið brást stjórnlagaráði
- Ný skátaöld að hefjast
- Hefur afplánun á Skólavörðustíg
- Auka þarf umfang vöktunar
- Dráttur í beinni
- Þingmenn lesa Passíusálmana
- Ísing á Hellisheiði
- Lánað án trygginga og heimildar
- Allt að 100 ný störf
- Fimm sviptir á Suðurgötu
- Lagaramminn ekki sá einfaldasti
- Mikið sungið í bankanum
- Lögðu hald á marijúna og e-töflur
- Ábendingar til borgarinnar
- 2,1 milljarður í þróunarsjóði
- Jón Baldvin íhugar lögbann
- Varasamur vegarkafli
- Færri fara í tæknifrjóvganir
- Notaði munnhörpu sem hnúajárn
- Fá ekki frítt í sund
- Segist ekki saka sýslumenn um lögbrot
-
Ómarkviss þjóðaratkvæðagreiðsla
- Stjórnlagaráð
- Umfjöllun í Nýju lífi um bréf Jóns Baldvins Hannibalssonar
- Grunnskólakennari fordæmir samkynhneigð
- Fjárlagafrumvarp 2011
- Landsdómur
Svipaðar fréttir
- Sunnudagur, 12. september 2010, Innlent Feðgar flýðu land vegna hótana
- Mánudagur, 13. september 2010, Innlent Einn í haldi en öðrum sleppt
- Miðvikudagur, 15. september 2010, Innlent Laus úr gæsluvarðhaldi
- Föstudagur, 17. september 2010, Innlent „Jón blessunarlega laus við fordóma"
- Föstudagur, 17. september 2010, Innlent Rannsókn lokið
-
Costa Concordia björgun
-
Hundarnir finna dópið strax
-
Umferðamiðstöð sprengd í Peshawar
-
Færir Advania forystu?
-
Fangaverðir hjálpuðu föngum að flýja
-
Fundu lík fimm ára stúlku
-
Talinn hafa skotið bekkjarsystur sína
-
Kristrún: Eigum séns á að komast í úrslitakeppnina




































