Andlát: Baldur Pálmason

Baldur Pálmason.
Baldur Pálmason.

Baldur Pálmason fv. dagskrárstjóri Ríkisútvarpsins er látinn, 88 ára að aldri. Baldur fæddist í Köldukinn á Ásum 17. desember árið 1919 en ólst að mestu upp á Blönduósi.

Var hann eina barn foreldra sinna, þeirra Pálma Jónassonar bónda á Álfgeirsvöllum í Skagafirði og Margrétar Kristófersdóttur frá Köldukinn.

Baldur var kvæntur eiginkonu sinni, Guðnýju Sesselju Óskarsdóttur, í fjörutíu ár en hún lést árið 1990. Seinni sambýliskona hans var Guðrún A. Jónsdóttir, en hún lést í júní 2008. Baldur var barnlaus.

Árið 1938 lauk Baldur námi við Verzlunarskóla Íslands og starfaði við bókfærslu hjá GH Melsteð. Sinnti hann þularstarfi í ígripum hjá Ríkisútvarpinu árið 1946 en í kjölfar þess tók hann við starfi fulltrúa á skrifstofu útvarpsráðs árið 1947.

Annaðist Baldur lengi barnatíma, síðan kvöldvökur og tók saman bókmenntaþætti. Baldur vann hjá Ríkisútvarpinu í fjóra áratugi en lét af störfum þar árið 1981. Skáldskapur var mikið áhugamál Baldurs en auk þess að taka saman ljóðaþætti gaf hann út bækur með eigin ljóðum. Gaf hann út ljóðabækurnar Hrafninn flýgur um aftaninn árið 1977 og Björt mey og hrein tveimur árum síðar. Árið 2000 gaf hann út bókina Á laufblaði einnar lilju til minningar um föður sinn Pálma Jónasson. Þá orti hann og þýddi söngtexta, þar á meðal „Alparósina“ við lag úr söngleiknum Söngvaseið.

Frá 2008 bjó Baldur á hjúkrunarheimilinu Sóltúni í Reykjavík, en þar lést hann 11. september sl. Útför Baldurs verður gerð frá Hallgrímskirkju á föstudag kl. 15.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert