Ráðin tengiliður vegna vistheimila

Guðrún Ögmundsdóttir
Guðrún Ögmundsdóttir mbl.is/ÞÖK

Guðrún Ögmundsdóttir, félagsráðgjafi og fyrrverandi þingmaður, hefur verið ráðin í starf tengiliðar vegna vistheimila. Hún mun hefja störf 20. september nk. Alls sóttu 20 um starfið.

Starf tengiliðar felst í að koma með virkum hætti á framfæri upplýsingum til þeirra sem kunna að eiga bótarétt samkvæmt lögunum. Hann skal m.a. leiðbeina þeim sem til hans leita um framsetningu bótakrafna í kjölfar innköllunar sýslumanns.

Þá skal tengiliðurinn aðstoða fyrrverandi vistmenn, sem eiga um sárt að binda í kjölfar vistunar, við að sækja sér þjónustu sem ríki og sveitarfélög bjóða upp á, svo sem varðandi endurhæfingu og menntun.
Sýslumaðurinn á Siglufirði annast þau verkefni sem sýslumanni eru falin samkvæmt lögum um sanngirnisbætur fyrir misgjörðir á stofnunum eða heimilum, segir í tilkynningu.

Guðrún Ögmundsdóttir er með próf í félagsfræði og félagsráðgjöf frá Roskilde Universitetscenter og hefur auk þess lokið framhaldsnámi í fjölmiðlafræði frá sama háskóla. Hún lauk einnig námi í handleiðslu frá Háskóla Íslands. Guðrún hefur starfað í menntamálaráðuneytinu frá árinu 2007 og sat á Alþingi frá 1999-2007. Áður vann hún m.a. í félagsmálaráðuneytinu og var borgarfulltrúi um árabil. Guðrún vann einnig um árabil að málefnum fatlaðra. Þá var hún félagsráðgjafi kvennadeildar Landspítalans frá 1988-1994.


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert