Krefjist hærri launa á móti
ASÍ hyggst ekki taka frekari verðhækkunum á vörum og þjónustu þegjandi og hljóðalaust. Eggert Jóhannesson
Alþýðusamband Íslands mun ekki horfa aðgerðalaust á verðhækkanir á vörum og þjónustu heldur krefjast sambærilegrar hækkunar á launum í komandi kjarasamningum, að sögn Gylfa Arnbjörnssonar, forseta ASÍ.
Sem kunnugt er hefur Myllan tilkynnt að hún hyggist hækka verð á vörum sínum um að meðaltali 8,1% um næstu mánaðamót, auk þess sem búist er við áframhaldandi hækkun á verði lambakjöts, svo dæmi séu tekin. Gylfi kveðst harma þessa þróun.
„Við höfum varað eindregið við því, bæði gagnvart atvinnulífinu og sveitarfélögum, að ef að þetta á að vera einhver allsherjar lausn á vanda þessara aðila, að velta honum ofan á neytendur og launafólk með hækkunum, muni sú röksemdafærsla og aðferðafræði duga okkur.
Þá eru menn sammála því að allir séu í kapphlaupi um að vera ekki síðastur. Það hlýtur þá að hafa áhrif á það með hvaða hætti okkar félagsmenn vilja að við förum inn í gerð næstu kjarasamninga. Sú umræða stendur yfir hjá aðildarfélögum okkar.
Ef það á að leysa þennan vanda með því að velta honum yfir á einhvern annan verðum við að horfa til þess að gera hið sama með því að sækja auknar tekjur til að mæta þessu.“
- Mun það ekki þrýsta upp verðbólgu?
„Þá verðum við að hækka launin aftur, ef verðið hækkar aftur. Menn hljóta að gera sér grein fyrir að okkar félagsmenn munu ekki láta bjóða sér að þeir verði einir látnir sitja eftir.“
Bloggað um fréttina
-
Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir Ein laun á alla... 350,000kr. -
Sigurður Jónsson Enn sami brandarinn hjá ASÍ. Allir vita að ASÍ kyngir ... -
Páll Vilhjálmsson Gengið styrkist, vextir lækka og verslunin hækkar -
Njörður Helgason Við erum í hlekkjum.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 8. september 2010, Innlent Aðför að þeim fátækustu
- Fimmtudagur, 21. október 2010, Innlent Hvatti Gylfa til að íhuga stöðu sína
- Fimmtudagur, 29. september 2011, Innlent Búvörur hækkað minna en aðrar neysluvörur
- Föstudagur, 9. október 2009, Innlent „Við erum í ömurlegri stöðu"
- Laugardagur, 30. október 2010, Innlent Millitekjufólk fái launahækkanir
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“





































