Bandarískur hershöfðingi heimsótti Gæsluna

Hershöfðinginn Roger Brady.
Hershöfðinginn Roger Brady.

Roger Brady, hershöfðingi og yfirmaður flughers Bandaríkjamanna í Evrópu, heimsótti Landhelgisgæsluna í gær ásamt fylgdarliði. Georg Kr. Lárusson, forstjóri Gæslunnar, tók á móti Brady, sem var kynnt starfsemi Landhelgisgæslunnar og helstu verkefnum hennar.

Fram kemur á vef LHG að Brady hafi komið til landsins í gær og heimsótt bandarísku flugsveitina sem sé hér á landi og sinnir loftrýmisgæslu til 24. september.

Brady fór svo af landi brott síðdegis en hann er staðsettur í Rammstein í Þýskalandi þar sem höfuðstöðvar flughers Bandaríkjanna í Evrópu eru staðsettar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert