Vilja þak á verðbætur
Hagsmunasamtök heimilanna vilja að höfuðstóll verðtryggðra lána verði stilltur á stöðu höfuðstóls lánanna eins og hann var í árslok 2007. Frá þeim tíma verði sett þak á árlegar verðbætur. Þetta er meðal tillagna sem samtökin kynntu í dag.
Hagsmunasamtökin segja að þetta þak geti hæst jafngilt efri vikmörkum verðbólgumarkmiða Seðlabanka Íslands, eins og þau voru frá apríl 2001, það er 4,0% á ári. Þannig leiðrétt lán ættu að mati Hagsmunasamtaka heimilanna að vera viðráðanleg fyrir flesta lántaka. Samtökin vilja að það sem eftir standi verði afskrifað án þess að skattur sé lagður á afskriftir.
Samtökin krefjast þess að höfuðstóli gengisbundinna húsnæðislána verði breytt í verðtryggt krónulán miðað við stöðu þeirra í lok árs 2007. Skilmálar lánanna taki mið af lægstu vöxtum Seðlabankans af verðtryggðum lánum eða lægstu vöxtum viðkomandi lánveitanda.
Hagsmunasamtökin vilja gera veigamiklar breytingar á húsnæðiskerfinu. Þau vilja að 4% þak verði sett á árlegar verðbætur verðtryggðra húsnæðislána, sem lækki þar til verðtrygging húsnæðislána verður afnumin. 5-6% hámark verði sett á óverðtryggða vexti húsnæðislána og samið verði í 3-5 ár í senn.Samtökin benda á að hrun varð í hagkerfinu vegna háttsemi fjármálafyrirtækja, hagstjórnarmistaka og rangra pólitískra ákvarðana. Í undanfara hrunsins og samhliða því hafi skulda- og greiðslubyrði heimilanna aukist mjög mikið. Samtökin telja óeðlilegt að lántakar eigi að bera þann kostnað meðan fjármálafyrirtæki eiga að hafa tekjur af háttsemi sinni og forvera sinna.
Hagsmunasamtökin benda á að á þriðja þúsund beiðnir séu núna komnir í nauðungasöluferli. Um 1.500 íbúðir séu í eigu fjármálafyrirtækja. Um 40 þúsund fjölskyldur eigi ekki fyrir óvæntum útgjöldum. Þá hafi 18.000 manns flutt af landi brott á síðustu tveimur árum.
Bloggað um fréttina
-
Sigurður Sigurðsson Fínar tillögur -
Marinó G. Njálsson Kostnaður og ávinningur - hvort vegur þyngra? -
Magnús Helgi Björgvinsson Nokkrar vangaveltur varðandi hugmyndir Hagsmunasamtakana -
Ingvi Rúnar Einarsson Hvernig væri að skellinum væri jafnt skipt?
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 18. desember 2009, Innlent Hærri skattar hækka lánin um 13,4 milljarða
- Þriðjudagur, 22. júní 2010, Innlent Um tvö aðskilin mál að ræða
- Miðvikudagur, 26. ágúst 2009, Innlent Höfuðstóll lána verði lækkaður
- Fimmtudagur, 20. október 2011, Innlent Miðað verði við stöðu lána árið 2008
- Fimmtudagur, 9. desember 2010, Innlent Drög að frumvarpi verið gerð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































