Bolungarvíkurgöngin opnuð

Úr Bolungarvíkurgöngunum.
Úr Bolungarvíkurgöngunum. mbl.is/Helgi Bjarnason

Ögmundur Jónasson, samgönguráðherra, og Kristján L. Möller, forveri hans, opnuðu Bolungarvíkurgöngin formlega Bolungarvíkurmegin fyrir skömmu.  Er löng bílalest nú að aka gegnum göngin og verða þau síðan opnuð formlega Hnífsdalsmegin innan skamms.

Hreinn Haraldsson, vegamálastjóri, sagði þegar hann ávarpaði viðstadda, að Ögmundur hefði óskað eftir því að Kristján tæki þátt í opnuninni enda hefði hann verið samgönguráðherra þegar framkvæmdirnar hófust fyrir rúmum tveimur árum og þar til fyrir hálfum mánuði.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert