„Gátum ekki setið undir þessu“
Nokkrir fulltrúar á landsþingi Sambands íslenskra sveitarfélaga, sem fer nú fram á Akureyri, yfirgáfu fundarsalinn þegar Ögmundur Jónasson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, ávarpaði gesti fyrr í dag. Mörgum þótti það óviðeigandi að hann skyldi hefja mál sitt á því að ræða landsdóm og ákæruna á hendur Geir H. Haarde.
„Við vorum nokkur þarna sem gátum ekki setið undir þessu,“ segir Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is.
Hún segir að ummæli Ögmundar hafi verið óviðeigandi og að fleiri séu þeirrar skoðunar. Ögmundur hafi m.a. sagt að Geir væri drengur góður en að menn mættu ekki líta á ákæruna sem persónulegt dómsmál, heldur væri um að ræða ákæru á hendur ráðherra.
Ögmundur hafi líkt þessu við umferðarlagabrot og sagt að menn ættu ekki að taka því persónulega fengju þeir sekt, því málið snerist um reglur.
„Það vita allir menn að þetta er persónulegt [...] og hápólitískt,“ segir Þorbjörg Helga og bætir við að Ögmundur hefði betur átt að sleppa þessari umræðu og einbeita sér að sveitastjórnarmálum í ávarpi sínu.
„Hann hefur mál sitt á þessu og gekk fullkomlega yfir strikið. Það er ennþá mikil reiði í salnum,“ segir Þorbjörg Helga og bætir við að það hafi ekki bara verið fulltrúar Sjálfstæðisflokksins sem hafi gengið út.
Margir hafi undrast að Ögmundur skyldi hafa ákveðið að ræða þetta hitamál á landsþingi Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Talið er að hátt í 30 fundargestir hafi yfirgefið fundarsalinn.
Bloggað um fréttina
-
Brynjar Þór Guðmundsson Málefnið Ögmundur -
Axel Jóhann Hallgrímsson Línan lögð -
Ásdís Sigurðardóttir Veruleikafirrtir vitleysingar verja gjörðir sínar. -
Gísli Foster Hjartarson Persónulegt? -
Sigurður Haraldsson Mokum út! -
Úrsúla Jünemann Sjálfstæðismenn og lýðræði -
Kristinn Karl Brynjarsson Umferðarlög og ráðherraábyrgð. -
Haraldur Haraldsson „Gátum ekki setið undir þessu“/Ögmundur er en að koma á ... -
Heimir L Fjeldsted Mannréttindaráðherra ver gjörðir ofbeldismanns -
Guðbjörn Jónsson Eru lög um ráðherraábyrgð misskilin??
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 30. september 2010, Innlent „Ekki með neina sleggjudóma“
- Fimmtudagur, 30. september 2010, Innlent Var brugðið og hissa
- Fimmtudagur, 1. október 2009, Innlent Brussel skrifstofa styrkt áfram
- Fimmtudagur, 30. september 2010, Innlent AGS passar upp á fjármagnið
- Fimmtudagur, 14. október 2010, Innlent Ögmundur: Allir þurfa að hafa skilning á stöðu ríkissjóðs
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“





































