16 milljarðar og 150 störf

Álverið í Straumsvík
Álverið í Straumsvík

Rio Tinto Alcan ætlar verja 140 milljónum Bandaríkjadala, 16 milljörðum króna, til breytinga á framleiðsluferli álversins í Straumsvík. Kallar þetta á 150 ný ársverk. Þetta er til viðbótar við 347 milljóna Bandaríkjadala fjárfestingu í uppfærslu á búnaði og 20% framleiðsluaukningu álversins sem var kynnt nýverið. 

Í stað barra verða framleiddir svonefndir boltar (sívalar stangir), sem eru verðmætari afurð, samkvæmt tilkynningu frá Rito Tinto Alcan.

 „Við erum sannfærð um að eftirspurn fyrir álbolta verði góð í Evrópu og það mun gera okkur kleift að festa okkur í sessi á þessum þýðingarmikla markaði. ISAL notar græna orku og losar lítið af gróðurhúsalofttegundum og getur því framleitt bolta á umhverfisvænni hátt en önnur álver. Aðkoma ISAL að framleiðslunni styrkir einnig stöðu okkar með hliðsjón af því að álverið hefur reynst afar áreiðanlegur framleiðandi á hágæðavörum,“ segir Gordon Hamilton, framkvæmdastjóri á sölu- og markaðssviði Rio Tinto Alcan, fréttatilkynningu.

Önnur álver Rio Tinto Alcan í Frakklandi og á Bretlandi munu taka við hluta af barraframleiðslunni sem ISAL hefur sinnt fram til þessa.

Gert er ráð fyrir að boltaframleiðsla hefjist í Straumsvík árið 2012 og að alfarið verði búið að skipta yfir í boltaframleiðslu fyrir árslok 2014.


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert