Boða mótmæli á Facebook

Á Austurvelli við þingsetningar í gær.
Á Austurvelli við þingsetningar í gær. mbl.is/Eggert

Send hafa verið út skilaboð á facebook um mótmæli á Austurvelli kl. 19:30 á mánudagskvöld. Ekkert bar á mótmælendum í gærkvöldi eða nótt að sögn lögreglu.

Um 2000-3000 manns mótmælti á Austurvelli í gær við setningu Alþingis. Hópur fólks kastaði eggjum, tómötum og fleiru í átt að þingmönnum. Lögregla varaði mótmælendur við að ef gengið yrði lengra yrði beitt piparúða og táragasi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert