Málningu skvett á þinghúsið

Rauðri málningu var skvett á Alþingishúsið.
Rauðri málningu var skvett á Alþingishúsið. mbl.is/Júlíus

Blöðrum með rauðri málningu, eggjum og öðru lauslegu hefur verið kastað í Alþingishúsið en stór hópur fólks hefur safnast saman á Austurvelli þar sem boðað var til mótmæla í kvöld. 

Mótmælendur hafa skotið blysum að þinghúsinu og logandi kínverjum hefur verið kastað að lögreglumönnum sem standa vörð við Alþingi. Eggjum hefur sömuleiðis rignt yfir þinghúsið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert