Saksóknarar kosnir á þriðjudag

Sigríður J. Friðjónsdóttir
Sigríður J. Friðjónsdóttir ljósmynd/mbl.is

Kosið verður um þingsályktunartillögu þess efnis að Sigríður J. Friðjónsdóttir verði saksóknari í máli Geirs H. Haarde og Helgi Magnús Gunnarsson til vara á þriðjudaginn.

Fundi þingmannanefndar Atla Gíslasonar lauk fyrir skömmu en á honum voru lagðar fram tillögur um skipan Sigríðar og Helga. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins hófu fundinn á því að árétta að störfum nefndarinnar væri lokið. Þannig væri hún ekki bær til þess að leggja fram þingsályktunartillögu um skipan saksóknara og því verði þingmennirnir að leggja fram tillöguna sjálfir en ekki á vegum nefndarinnar. Ragnheiður Ríkharðsdóttir og Unnur Brá Konráðsdóttir gengu því af fundinum.

„Já, það var niðurstaða hópsins, þessara sjö þingmanna í nefndinni, að gera það að tillögu sinni til forseta Alþingis en fulltrúar Sjálfstæðisflokksins töldu að verkefnum þingmannanefndarinnarværi lokið og tóku því ekki þátt í þessari ákvörðun,“ segir Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingmaður VG, en hún verður ein flutningsmanna þingsályktunartillögunnar.

 „Þetta verður þá lagt til forseta og menn leggja þetta fyrir þingið eftir helgi, þetta verður tekið fyrir á þriðjudaginn,“ segir Lilja Rafney.

Flutningsmenn ásamt Lilju Rafney verða því Atli Gíslason, Birgitta Jónsdóttir, Eygló Harðardóttir, Magnús Orri Schram, Oddný G. Harðardóttir og Sigurður Ingi Jóhannsson.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert