Mikil fjölgun farþega

Icelandair.
Icelandair. Ljósmynd/Sigurður Bogi Sævarsson

Farþegum Icelandair fjölgaði um 22% á milli ára í september er alls 146.222 en var 120.010 í september í fyrra. Hafa farþegar í september aldrei verið fleiri. Farþegar á fyrstu níu mánuðum ársins í ár voru 1.166.386 en 1.037.860 í fyrra.

Fjöldi sæta í boði á flogna kílómetra var 494.783 á tímabilinu en 425.615 í fyrra.

Heldur dregur þó úr sætanýtingu flotans en hún var 97,6% í september í fyrra en 93,6% í sama mánuði í ár. Sé litið til sama tímabils í fyrra, þ.e. fyrstu níu mánaða ársins, kemur í ljós að sætanýtingin var 89,8% í fyrra en í ár 91,2%.

Þá varð samdráttur í nýtingu hótelherbergja á vegum félagsins en alls seldust 12.161 hótelnætur í september 2009 en 11.372 nætur í ár.   

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert