Jón Ásgeir vildi láta reka blaðamann
DV greinir frá því að Jón Ásgeir Jóhannesson, aðaleigandi 365 miðla, hafi haft bein afskipti af ritstjórn Fréttablaðsins og beitt sér fyrir því að blaðamaður yrði rekinn fyrir að gera grín að sér á netinu. Þetta komi fram í tölvupóstum sem DV hafi undir höndum.
Fram kemur í DV í dag að Jón Kaldal, þáverandi ritstjóri Fréttablaðsins, hafi mótmælt afskiptunum. Hann staðfestir í samtali við mbl.is að hann kannist við umrædd tölvupóstsamskipti.
Segir í blaðinu að þann 11. september 2009 hafi Atli Fannar Bjarkason, þá nýráðinn blaðamaður á Fréttablaðinu, tekið sér fyrir hendur á Facebook að safna peningum fyrir Jón Ásgeir. Þetta hafi verið gert í gríni.
Atli hafi stofnað söfnunarreikning fyrir Jón Ásgeir, sem í viðtali við Viðskiptablaðið hafi tekið fram að fólk þyrfti ekki að hafa áhyggjur af sér.
Jón Ásgeir á að hafa sent Ara Edwald, forstjóra 365, eftirfarandi póst vegna málsins:
„Sæll
Óska eftir því að þessi starfsmaður verði látinn fara nú þegar
hann verður ekki í mínum húsum. Hann getur verið sniðugur og búið
sjálfur til fréttir hvar sem hann vill og hæðst af mér eins og hann
vill, en að ég ætli að borga honum laun fyrir það no way.
Kv
Jón Ásgeir“.
Fram kemur í DV að Ari svari Jóni Ásgeiri og vari hann við því að ákvörðunin kynni að verða notuð gegn honum, þ.e. að verulegar séu á því að sjálfstæðar fréttir yrðu sagðar af því að blaðamaður hefði verið rekinn af Fréttablaðinu.
Einnig er vísað til tölvupóstar sem Ingibjörg Pálmadóttir, eiginkona Jóns Ásgeirs, sendi en þar kveðst hún sammála orðum Ara.
Atli Fannar starfar enn á Fréttablaðinu, en Jóni Kaldal var sagt upp fyrr á þessu ári.
Bloggað um fréttina
-
Páll Vilhjálmsson Jón Ásgeir gleymdi broskallinum - aftur -
Jón Valur Jensson Ekki nóg með, að Jón Ásgeir vildi láta reka blaðamann; ... -
Heimir L Fjeldsted Mikilmenni -
Viggó Jörgensson Lífstíðar aumingi eða viðskiptasnillingur? -
Magnús Þór Jónsson Jón Ásgeir og eignirnar
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 24. febrúar 2010, Innlent Ólafur Þ. Stephensen nýr ritstjóri Fréttablaðsins
- Miðvikudagur, 24. febrúar 2010, Innlent „Ég var rekinn“
- Þriðjudagur, 30. nóvember 2010, Innlent Prentmiðlar fjalla mest um Jón Ásgeir
- Þriðjudagur, 3. nóvember 2009, Innlent Vísar fullyrðingum Viggós á bug
- Föstudagur, 18. mars 2011, Innlent Stefnir DV
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































