Unnið var að því í gær að skipta um allt að tíu rúður í Stjórnarráðshúsinu við Lækjargötu sem karlmaður í annarlegu ástandi braut aðfaranótt þriðjudags.
Maðurinn notaðist við barefli við athæfið og var handtekinn á vettvangi. Bætist því enn í kostnað ríkisins vegna rúðuskipta að undanförnu.