Eldsneytisverðstríð á Akureyri

Atlantsolía
Atlantsolía

Verðstríð virðist vera í uppsiglingu á eldsneytismarkaði á Akureyri en fyrr í dag lækkaði Atlantsolía verð á bensínlítranum um 9 krónur og kostar hann nú 183,40 krónur. Orkan seldur lítrann á 193,30 krónur á Norðurlandi en bensínlítrinn er dýrastur hjá Skeljungi á Akureyri, 194,90 krónur.

Á höfuðborgarsvæðinu kostar lítrinn af bensíni 193,30 krónur hjá Orkunni en 193,40 krónur hjá Atlantsolíu.

Sjá nánar hér

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert