Ók bíl yfir knattspyrnuvöll

Grasvöllurinn er talsvert skemmdur eftir aksturinn.
Grasvöllurinn er talsvert skemmdur eftir aksturinn. bb.is/JBH

Töluverðar skemmdir voru unnar á grasvellinum á Torfnesi á Ísafirði í fyrrinótt. Svo virðist sem einhver hafi gert það að leik sínum að aka inn á völlinn, væntanlega í þeim eina tilgangi að skemma hann.

Leið ökutækisins hefur legið upp fyrir Menntaskólann, yfir tjaldsvæðið ofan íþróttahússins og þaðan inn á grasvöllinn.

Þeir sem geta gefið upplýsingar um hver var þar að verki, eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna á Ísafirði.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert