Dularfull ljós í kirkjugarði

Úr Gufuneskirkjugarði.
Úr Gufuneskirkjugarði. mbl.is/Kristinn

Undarleg ljós sáust í Gufuneskirkjugarði í nótt og var lögreglan kölluð á vettvang. Samkvæmt tilkynningu áttu einhverjir að vera á ferli í kirkjugarðinum en ekki var vitað hvort þeir væru lífs eða liðnir.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu voru tveir lögreglumenn sendir á staðinn og þar mætti þeim strax sterkt ljós. Við frekari eftirgrennslan reyndist birtan kom frá ljóskastara sem framhaldsskólapiltar voru að burðast með og því voru engir draugar hér á ferð.

Lögreglan segir, að piltarnir hafi líka verið með myndbandsupptökuvél í fórum sínum en vera þeirra í kirkjugarðinum átti sér eðlilegar skýringar. Þeir voru að vinna að skólaverkefni og var þeim leyft að klára það úr því sem komið var.

Lögreglan segir, að piltarnir hafi ekki verið með háreysti og gengið í alla staði mjög vel um þótt tímasetning þeirra hefði mátt vera betri.


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert