Erum að ná botninum
„Það hillir undir að við náum botni á verstu efnahagskreppu lýðveldistímans,“ sagði Ólafur Darri Andrason, hagfræðingur ASÍ sem kynnti nýja hagsspá ASÍ á ársfundi sambandsins. ASÍ spáir 1,7% hagvexti á næsta ári, en Ólafur Darri segir að hann verði næstum tvöfalt meiri ef farið verði út í framkvæmdir við Helguvík.
Í hagspá ASÍ fyrir næsta ár er miðað við að farið verði út í framkvæmdir við Straumsvík sem kynntar hafa verið, en ekki er reiknað með framkvæmdum við álverið í Helguvík eða orkuframkvæmdum sem því tengjast. Ólafur Darri sagði engan vafa leika á að það myndi skipta mjög miklu máli ef vinna við álverið í Helguvík færi í fullan gang. Reiknað væri með að um 1300 manns fengju vinnu meðan á framkvæmdum stæði.
„Við höfum orðið fyrir gríðarlegu áfalli,“ sagði Ólafur Darri í upphafi ræðu sinnar. „Frá hruninu erum við búin að tapa einni krónu af hverjum 10 út úr verðmætasköpuninni. Það þýðir að við höfum orðið af árlegri verðmætasköpun upp á 160 milljörðum.“
Ólafur Darri sagði að vöxturinn væri enn hægur og því yrði staða heimilanna áfram þröng. Um 12.500 manns voru án vinnu í september og Ólafur Darri sagði ljóst að áfram yrði verulegt atvinnuleysi hér á landi ef ekki tækist að auka fjárfestingu.
Árið 2006 var fjárfesting hér á landi um 600 milljarðar, en þá voru framkvæmdir á Austurlandi í hámarki og mikil þennsla á fasteignamarkaði. Í fyrra dróst fjárfesting saman um helming og í ár er spáð að fjárfesting verði um 180 milljarðar.
Ólafur Darri sagði að þetta mikla hrun í fjárfestingu hefði slæm áhrif á vinnumarkaði þegar til skamms tíma væri litið, en þegar til lengri tíma væri litið væri þetta líka slæmt því að lítil fjárfesting kæmi niður á framtíðartekjum okkar.
Ólafur Darri sagði að þrátt fyrir að gengi krónunnar hefði lækkað verulega og dregið hefði úr innflutningi værum við enn að safna skuldum í útlöndum. Hann sagði ljóst að það væri ekki hægt að „svelta sig út úr vandanum“ eins og hann komst að orði. Við yrðu að auka tekjur okkar með aukinni atvinnusköpun.
Bloggað um fréttina
-
Axel Jóhann Hallgrímsson Hefur einhver lifað það af, að vera sveltur til bana? -
S i g u r ð u r Sigurðarson Vill ASÍ vinna bug á atvinnuleysi og skuldavanda? -
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir Fátækt í ríku landi -
Axel Jóhann Axelsson Atvinnusköpun eða ríkisstjórnina frá -
Ólafur Ingi Hrólfsson AUSTURVÖLLUR KL 17 Í DAG
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 9. október 2009, Innlent Þurfum aðgang að lánsfé
- Fimmtudagur, 22. október 2009, Innlent Mikill samdráttur útgjalda
- Föstudagur, 3. september 2010, Innlent Krónan þarf að styrkjast meira
- Fimmtudagur, 25. nóvember 2010, Innlent Ríkissjóði blæðir vegna tafa í Helguvík
- Föstudagur, 6. maí 2011, Innlent Kaupmáttur talinn vaxa um 3-4%
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































