Fjórir í varðhald - lagt hald á sex milljónir

Fjórir karlar hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 4. nóvember að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Mennirnir, sem eru erlendir ríkisborgarar og á þrítugs- og fertugsaldri, voru handteknir í Reykjavík og Grímsnesi í gær en rannsókn lögreglu snýr að ætlaðri framleiðslu fíkniefna, sölu þeirra og dreifingu.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Fimm húsleitir voru framkvæmdar samhliða í Reykjavík, Reykjanesbæ og Grímsnesi. Lagt var hald á amfetamín og kókaín og um 2 kg af marijúana auk fjármuna, eða um 6 milljónir króna í reiðufé sem álitið er að sé afrakstur fíkniefnasölu.

Lögregla tók einnig í sína vörslu ýmis önnur verðmæti og hluti sem taldir eru tengjast ætlaðri brotastarfsemi.

Við áðurnefndar aðgerðir naut lögreglan á höfuðborgarsvæðinu aðstoðar lögregluliðanna á Selfossi og Suðurnesjum auk lögreglumanna frá embætti ríkislögreglustjóra.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert