Hafa áhyggjur af þjónustu við langveik börn

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra var í dag sæmd fyrsta gullmerki Umhyggju …
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra var í dag sæmd fyrsta gullmerki Umhyggju fyrir óeigingjarnt og fórnfúst starf að málefnum landveikra barna.

Umhygg, félag til stuðnings langveikum börnum, lýsi áhyggjum af stöðu heilbrigðisþjónustu langveikra barna á næstu árum og veltir fyrir sér hver staðan verði árið 2015.  

Þetta kemur fram í ályktun félagsins sem var samþykkt á málþingi í dag. Þar segir:

„Félagið og málþingið lýsa áhyggjum af stöðu heilbrigðisþjónustu langveikra barna á næstu árum og velta fyrir sér hver staðan verður árið 2015.  G

ríðarlegar framfarir hafa átt sér stað á sviði barnalækninga og umönnunar langveikra barna á undanförnum áratugum og mikið áunnist í réttindamálum þessa hóps.  Vaxandi áhyggjur eru hins vegar af niðurskurði í heilbrigðisþjónustu, atgervisflótta úr heilbrigðisstéttum og því að langveik börn þurfi að sitja á hakanum. 

Mikilvægt er að hin frábæra þróun sem orðið hefur á þessu sviði á undanförnum árum stöðvist ekki. 

Óskað er eftir því að yfirvöld leggi sitt á vogarskálarnar til að tryggja áframhaldandi framþróun á þessu sviði.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert