Síbrotakona úrskurðuð í gæsluvarðhald

mbl.is/Júlíus

Hæstiréttur staðfesti í gær gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur yfir konu sem er grunuð um fjölda afbrota. Konan segist hafa neytt morfíns daglega í rúm tuttugu ár, með hléum þó. Segist hún vera hjartveik og HIV smituð. Er henni gert að sitja í gæsluvarðhaldi til 19. nóvember.

Konan hefur verið dæmd fyrir fjölda afbrota, síðast í tólf mánaða fangelsi árið 2007.  Í júlí var gefin út ákæra á hendur henni fyrir fjölmörg brot og átti að þingfesta málið í héraðsdómi þann 14. október sl. Þar sem konan mætti ekki var gefin út handtökuskipun á hendur henni.

Hún var síðan handtekin þann 21. október en hún er grunuð um bílþjófnað og að hafa ekið bifreiðinni inn í húsnæði hárgreiðslustofu og stolið þaðan smámynt og fleiru.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert