Lækir við Hengil veita vísbendingar um hlýnun jarðar

Á einum stað í dalnum er 14 stiga munur á …
Á einum stað í dalnum er 14 stiga munur á hitastigi lækja. Í öðrum þeirra er vatnið 6°C en í hinum er það rúmlega 20°C.

Íslenskir, bandarískir og sænskir líffræðingar rannsaka nú áhrif hitastigs og áburðar á lífríkið í 15 lækjum í Miðdal.

Tilgangurinn er einkum sá að leiða líkum að því hvaða áhrif hlýnandi loftslag mun hafa á lífríki jarðar. Miðdalur, sem er einn Hengilsdalanna þriggja, er kjörinn vettvangur slíkra rannsókna, en þar er einstök fjölbreytni. Hitastig lækjanna er frá 5-45°C. Rannsóknin fékk 1,2 milljónir dollara í styrk frá bandarískri vísindastofnun, að því er fram kemur í umfjöllun um þessar rannsóknir í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert