Gerpla fær 3 milljónir

Jóhanna Sigurðardóttir heilsaðo liðsmönnum í Gerplu í móttökuathöfn í vikunni
Jóhanna Sigurðardóttir heilsaðo liðsmönnum í Gerplu í móttökuathöfn í vikunni mbl.is/Golli

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun að styrkja kvennalið Gerplu,  nýkrýnda Evrópumeistara í hópfimleikum, um þrjár milljónir króna.

Kvennalið Gerplu í fimleikum náði þeim einstaka árangri að vinna til gullverðlauna á Evrópumótinu í hópfimleikum, sem fram fór í Malmö í Svíþjóð í október 2010.

Ríkisstjórnin fagnar þessum frábæra árangri liðsins og samþykkti í tilefni af honum að veita liðinu þrjár milljónir króna til undirbúnings fyrir þátttöku þess í Norðurlandamóti sem fram fer í Noregi árið 2011.

Kvennalið Gerplu.
Kvennalið Gerplu.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert