Gunnar Nelson vann Russel

Gunnar Nelson.
Gunnar Nelson.

Gunnar Nelson sigraði Michael Russel í lokaviðureign Fitness Expo mótsins í gær. Russel mætti sterkur tilleiks og varðist vel í byrjun en Gunnar náði undirtökunum og sigraði Russel eftir fjögurra mínútna og átta sekúndna viðureign, að því er segir á heimasíðu Mjölnis.

Samkvæmt lýsingum á síðu Mjölnis var góð stemmning í Laugardalshöllinni og hvöttu áhorfemdur Gunnar óspart. Fyrir viðureignina var Russel talinn líklegastur enskra glímukappa til að sigra Gunnar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert