Jón skipar starfshóp um vandamál svínaræktar

Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur skipað starfshóp til að leysa úr þeim vanda sem steðjar að svínarækt í landinu. Þetta var ákveðið á fundi sem ráðherra hélt með fulltrúum Svínaræktarfélags Íslands, Matvælastofnunar, Bændasamtaka Íslands og sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar Alþingis. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ráðuneytinu.

Mikil afskipti banka hefur veikt samkeppnisgrundvöll

„Vandi svínaræktar á Íslandi hefur verið í umræðu að undanförnu en greinin hefur nú á einum áratug gengið í gegnum tvö tímabil offramleiðslu, gjaldþrota og verðfalls afurða. Samhliða hefur þróunin verið í átt að aukinni samþjöppun í eignarhaldi.Mikil afskipti bankastofnana hafa síðan veikt samkeppnisgrundvöll smærri rekstrareininga.

Til starfshóps um málið verða kallaðir fulltrúar framleiðenda, neytenda, dýraverndar í landinu og eftirlitsaðila. Vinnunni verður stjórnað af starfsmönnum ráðuneytisins en markmiðið er að fjalla um málefni greinarinnar á breiðum grundvelli. Þar koma til álita þau umfjöllunarefni aðbúnaðar og meðferðar svína sem sagt hefur verið frá í fjölmiðlum að undanförnu.

Stefnt er að því að ný aðbúnaðarreglugerð líti dagsins ljós fyrir lok árs. Jafnframt verður m.a. horft til nýtingar á innlendu fóðri í svínarækt, þátt svínaræktar í fæðuöryggi og öryggismál sem tengjast svínarækt í nágrenni þéttbýlis. Þá verður leitað samstarfs við umhverfisráðuneyti varðandi úrgangsmál og aðra umhverfisþætti er snúa að svínaræktinni," segir í fréttatilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert