Kveikt á Óslóartrénu á sunnudag

Jólatré frá Ósló hefur lengi prýtt Austurvöll um jólin.
Jólatré frá Ósló hefur lengi prýtt Austurvöll um jólin.

Kveikt verður á Óslóartrénu svonefnda á Austurvelli á sunnudag. Hefst athöfnin klukkan 15:30 en upp úr klukkan 16 munu Wernø Holter sendiherra Noregs á Íslandi og Aud Kvalbein varaborgarstjóri Oslóar, afhenda Reykvíkingum tréð að gjöf. tekur Jón Gnarr, borgarstjóri, við trénu og hin 11 ára norsk-íslenska Embla Gabríela Børgesdóttir Wigum tendrar ljósin á því.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert