Úrslitin kynnt síðdegis

Í ljós kom að liðlega 10 þúsund atkvæðaseðlar eru ógildir …
Í ljós kom að liðlega 10 þúsund atkvæðaseðlar eru ógildir að hluta. mbl.is/Ernir

Landskjörstjórn stefnir að því að kynna úrslit kosninganna til stjórnlagaþings á blaðamannafundi síðdegis í dag. Ástráður Haraldsson, formaður landskjörstjórnar, segir að nú gangi vel að vinna úr niðurstöðunum.

Ástráður segir að ef ekkert óvænt kemur uppá verði niðurstöðurnar kynntar á blaðamannafundi síðdegis. Hafist var handa við úthlutun sæta í morgun á grundvelli talningar atkvæða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert