Dregið úr vægi verðtryggingar

Ríkisstjórnin mun hraða aðgerðum til að draga úr vægi verðtryggingar í íslensku efnahagslífi. Þetta kemur fram í yfirlýsingu um verðtryggingu og lífeyrismál, sem gengið var frá í tengslum við undirritun viljayfirlýsingar vegna skuldavanda í dag.

Í yfirlýsingunni segir einnig, að í ljósi þess að þátttaka lífeyrissjóða í aðgerðunum leggist með misjöfnum hætti á sjóðina og staða þeirra gagnvart lífeyrisskjörum sé ólík muni ríkisstjórnin leita leiða til að draga úr misvægi af þeim sökum og hraða þeirri vinnu sem í gangi er varðandi framtíðarfyrirkomulag lífeyrismála. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert