Samkomulag náðist um öll helstu atriði
„Það átti að ná lagalega bindandi samkomulagi í Kaupmannahöfn í fyrra en mistókst þannig að þetta var svolítið mikilvægur fundur til að ná samningaviðræðum aftur í gang og skapa traust og það telja menn að hafi tekist,“ segir Hugi Ólafsson, formaður samninganefndar Íslands og skrifstofustjóri hjá umhverfisráðuneytinu, sem setið hefur loftslagsráðstefnuna í Cancún í Mexíkó.
Samkomulag náðist þar í morgun um efldar alþjóðlegar aðgerðir og fjármögnun í loftslagsmálum. „Það eru ýmis efnisleg atriði sem eru stór áfangi í þessu samningaferli og það er sérstaklega stóraukin peningaaðstoð til þróunarríkjanna til loftlagsmála og tækniaðstoð, en svo líka bara það að það skuli hafa nást samkomulag.“
Líkt og fram hefur komið á mbl.is er samkomulagið ekki lagalega bindandi og sker ekki úr um sum erfiðustu deilumálin í loftslagsviðræðunum, s.s. um hvort þróuð ríki muni taka á sig bindandi losunarskuldbindingar undir merkjum Kýótó-bókunarinnar eftir að 1. skuldbindingartímabili hennar lýkur í árslok 2012.
Hugi segir að það hafi ekki verið fullt samkomulag um framtíð Kyoto bókunarinnar en í byrjun ráðstefnunnar tilkynntu Japanir að þeir vildu ekki taka á sig skuldbindingar á 2.tímabili og bjuggust margir við að sú ákvörðun myndi hleypa illu blóði í viðræðurnar, en svo var ekki. Aðspurður segir hann Japani ekki vera á móti lagalega bindandi skuldbindingum heldur vilji þeir að það taki við nýtt samkomulag þar sem jafnræðis sé gætt milli skuldbindingaríkja Kyoto annars vegar og Bandaríkjanna, Kína og annarra stórra losenda hinsvegar.
„Það náðist ekki samkomulag um framtíð Kyoto en það bjóst svo sem enginn við því. Þrátt fyrir það náðist heildarpakkasamkomulag um öll helstu atriði,“ segir Hugi að lokum.
Spurningunni um
lagalega bindandi losunartakmarkanir ríkja hefur verið frestað fram til 17.
aðildarríkjaþings Loftslagssamningsins í Suður-Afríku í árslok 2011.
Innlent »
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 19. desember 2009, Innlent Framför í loftslagsmálum
- Sunnudagur, 11. desember 2011, Innlent Ísland tekur á sig sameiginlega skuldbindingu
- Fimmtudagur, 12. maí 2011, Innlent Samstarf um leit og björgun
- Mánudagur, 28. nóvember 2011, Innlent Ísland tilbúið að taka á sig auknar skuldbindingar
- Föstudagur, 18. desember 2009, Innlent Samkomulagið vonbrigði
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“






































