Samið um lóð fyrir einkasjúkrahús
Bæjarstjóri Mosfellsbæjar og framkvæmdastjóri Prima Care ehf. hafa undirritað samninga um lóð vegna fyrirhugaðrar byggingar Prima Care ehf. á einkasjúkrahúsi og hóteli í Mosfellsbæ. Verkefnið mun skapa 600-1000 ný störf auk 250-300 starfa á byggingartíma og er talið að það muni kosta um 150 milljónir Bandaríkjadala, sem nemur um 17 milljörðum íslenskra króna.
Undirritaðir voru tveir samningar, annars vegar lóðarleigusamningur milli Mosfellsbæjar og Prima Care þar sem gert er ráð fyrir lóðarleigu samkvæmt gjaldskrá Mosfellsbæjar og hins vegar kaupréttarsamningur þar sem Prima Care er veitt heimild til þess að kaupa lóðina á tilteknum tímapunkti og að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Samningarnir eru undirritaðir með fyrirvara um samþykki bæjarráðs, samkvæmt fréttatilkynningu.
„Um er að ræða stofnun einkarekins liðskiptasjúkrahúss og hótels fyrir erlenda sjúklinga í Mosfellsbæ. Undirbúningur verkefnisins hefur verið í gangi sl. tvö ár og hyllir nú undir að hönnun spítalans geti hafist. Alls er gert ráð fyrir 80-120 rúma sjúkrahúsi með 4 skurðstofum sem anna mun 3.000-5.000 aðgerðum á ári. Markhópurinn er fyrst og fremst sjúklingar í Bandaríkjunum," segir í tilkynningu.
Hótelið verður 250-300 rúma hótel og gert er ráð fyrir 6.000-10.000 gestum árlega.
Gert er ráð fyrir að árlegar tekjur fyrirtækisins verði í kring um 120 milljónir dala, sem samsvarar um 14 milljörðum íslenskra króna sem gerir fyrirtækið að einu af 40 stærstu fyrirtækjum landsins, segir ennfremur í tilkynningu.
Prima Care ehf er íslenskt fyrirtæki. Meðal þeirra sem standa að því eru Gunnar Ármannsson framkvæmdastjóri, Finnur Snorrason yfirlæknir og sérfræðingur í bæklunarlækningum, Guðbjörg Edda Eggertsdóttir, forstjóri Actavis á Íslandi, Þórður Sverrisson, eigandi Lasersjón, Orkuhúsið Stoðkerfi, Sjúkraþjálfun Íslands, Íslensk myndgreining og Ísaga – Linde Health Care.
Erlendir bakhjarlar verkefnisins eru Shiboomi, sem er bandarískt fyrirtæki, Oppenheimer, svissneskt fjármögnunarfyrirtæki, Hill International, bandarískt ráðgjafafyrirtæki á sviði byggingaframkvæmda, Clifford Chance, sem er bresk lögmannsstofa og loks arkitektinn Carlos Zapata.
Bloggað um fréttina
-
Gunnlaugur B Ólafsson Flugeldasýning á aðventunni -
Axel Jóhann Axelsson Enn ein staðfesting á Icesavelyginni -
Björn Birgisson Skært ljós í skammdeginu -
Sigurbjörn Sveinsson Af ávöxtunum skulu þér þekkja þá
Innlent »
- Gerir alvarlegar athugasemdir
- D-vítamínbætt mjólk á markað
- Telja neytendur eiga betri rétt
- Unnur Brá: Eina lausnin?
- Tæplega helmingur ók of hratt
- Umgekkst vændiskonur í opinberum ferðum
- Vatnsleki vegna ræktunar
- „Ég er komin með nóg“
- Allt að 25% verðmunur
- „Pawel virðist eitthvað misskilja ferlið“
- Perlan góður kostur fyrir safn
- Með kannabisgræðlinga í bíl
- Rammaáætlunin tilbúin á næstu dögum
- Efla þarf rannsóknir á höfunum
- Bað hana að leyna bréfunum
- Málið var kært, en fellt niður
- Óvíst um fordæmisgildi
- Farþegum með Norrænu fækkaði
- Undir áhrifum á ótryggðum bíl
- Ólafur Ingi: Fagstétt útrýmt?
- Ný stjórn Röskvu
- Innkalla rjómasprautu
- Geir Jón gefur kost á sér
- Má gera athugasemdir í næsta blaði
- Kærir Snorra til lögreglu
- Hvessir undir Eyjafjöllum
- Jón Baldvin biðst afsökunar á bréfi
- 5,5 laxar í þúsund tonnum makríls
- Stöðvarhúslóð í Bjarnarflagi könnuð
- Brotist inn í Húsaskóla
Miðvikudagur, 22.2.2012
- Þingið brást stjórnlagaráði
- Ný skátaöld að hefjast
- Hefur afplánun á Skólavörðustíg
- Auka þarf umfang vöktunar
- Dráttur í beinni
- Þingmenn lesa Passíusálmana
- Ísing á Hellisheiði
- Lánað án trygginga og heimildar
- Allt að 100 ný störf
- Fimm sviptir á Suðurgötu
- Lagaramminn ekki sá einfaldasti
- Mikið sungið í bankanum
- Lögðu hald á marijúna og e-töflur
- Ábendingar til borgarinnar
- 2,1 milljarður í þróunarsjóði
- Jón Baldvin íhugar lögbann
- Varasamur vegarkafli
- Færri fara í tæknifrjóvganir
- Notaði munnhörpu sem hnúajárn
- Fá ekki frítt í sund
- Stjórnlagaráð
- Umfjöllun í Nýju lífi um bréf Jóns Baldvins Hannibalssonar
- Grunnskólakennari fordæmir samkynhneigð
- Fjárlagafrumvarp 2011
- Landsdómur
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 19. febrúar 2011, Innlent Tugir erlendra sjúklinga á mánuði
- Laugardagur, 15. maí 2010, Innlent Byggja hjúkrunarheimili í Mosfellsbæ
- Mánudagur, 15. mars 2010, Innlent Fjörutíu tillögur um nýjan framhaldsskóla
- Miðvikudagur, 8. desember 2010, Innlent Samþykkt að leggja Íbúðalánasjóði til 33 milljarða
- Fimmtudagur, 17. febrúar 2011, Innlent Krafðist afsagnar bæjarfulltrúa
-
Leita enn að líkum um borð
-
Hundarnir finna dópið strax
-
Umferðamiðstöð sprengd í Peshawar
-
Færir Advania forystu?
-
Fangaverðir hjálpuðu föngum að flýja
-
Fundu lík fimm ára stúlku
-
Talinn hafa skotið bekkjarsystur sína
-
Kristrún: Eigum séns á að komast í úrslitakeppnina
Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksinsí Suður...




































