Samstaða um eitt skattafrumvarp

Frá Alþingi.
Frá Alþingi.

Alþingi afgreiddi eftir hádegið ýmis skattafrumvörp ríkisstjórnarinnar sem lög. Um eitt þessara frumvarpa voru allir þingmenn sammála, um sérstakan skatt á fjármálafyrirtæki og greiddu allir viðstaddir þingmenn, 51 að tölu,  atkvæði með frumvarpinu.

Gert er ráð fyrir að skatturinn skili ríkissjóði um 1 milljarði króna í tekjur á næsta ári.  Gert er ráð fyrir að skattstofninn verði 0,041% af heildarskuldum samkvæmt skattframtali að frádregnum tryggðum innstæðum hjá Tryggingarsjóði innstæðueigenda og fjárfesta.

Í atkvæðagreiðslum um önnur skattafrumvörp sátu þingmenn stjórnarandstöðunnar ýmist hjá eða greiddu atkvæði á móti þeim.  Alþingi samþykkti m.a. lög um ráðstafanir í ríkisfjármálum, um skatta og gjöld, um virðisaukaskatt og um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti og fleiru.

Þá samþykkti Alþingi einnig lög um  vexti og verðtryggingu, sem fjallar um uppgjör svonefndra gengistryggðra lána.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert