Jákvæð teikn á lofti á fasteignamarkaði

Fasteignasalar skynja aukna eftirspurn.
Fasteignasalar skynja aukna eftirspurn. mbl.is/ÞÖK

Fasteignamarkaðurinn sem botnfraus við bankahrunið virðist nú vera að þiðna og umsvifin jafnt og þétt að færast í aukana. Seinni hluti ársins 2010 er umtalsvert líflegri en fyrstu misseri kreppunnar.

Þinglýstum kaupsamningum hefur fjölgað, mest á höfuðborgarsvæðinu eða um 41%. Á sama tíma hefur makaskiptum hlutfallslega fækkað, en þau voru um 36% af öllum kaupsamningum í fyrra en eru um 24% kaupsamninga það sem af er 2010.

Leigusamningum hefur hinsvegar fjölgað verulega. Þeir eru um tvöfalt fleiri nú en fyrir 5 árum og virðast því stoðir leigumarkaðarins vera að styrkjast eins og spáð hafði verið.

Í fréttaskýringu um fasteignamarkaðinn í Morgunblaðinu í dag segjast fasteignasalar skynja aukna eftirspurn og jákvæðari horfur á næsta ári og Væntingavísitala Gallups virðist styðja það því vísitala um fyrirhuguð húsnæðiskaup hækkar úr 4,3 stigum í 7,0 stig og hefur ekki verið hærri síðan í september árið 2008, rétt fyrir hrun.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert