Minna svifryk en venjulega

Styrkur svifryks (PM10) verður undir mörkum fyrsta dags ársins í Reykjavík 2011. Hæst mældist hann á mælistöðvum 353 míkrógrömm á rúmmetra við Grensásveg og 226 við Blesugróf á miðnætti. Heilsuverndarmörkin á sólarhring eru 50 míkrógrömm á rúmmetra.

Loft er ferskt og tært í borginni í dag og bílaumferð hverfandi enda mældist vart loftmengun klukkan 14 í dag, segir í tilkynningu frá umhverfissviði Reykjavíkurborgar.

Sennilega skutu borgarbúar upp færri flugeldum og sprengdu færri risatertur en undanfarin ár og veðurfar hjálpaði til við að hreinsa loftið skjótt og vel.

Til samanburðar má nefna að styrkur svifryks í Reykjavík mældist á nýársnótt 2010 hæstur 2.185 míkrógrömm á rúmmetra á mælistöð við Grensásveg. Nýársdagur 2010 var vel yfir sólarhringsmörkum eða 225.

Nýársdagur 2011 er kjörinn til útivistar gangandi og hjólandi, segir í tilkynningu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert