Vinstri grænir setjast á fund

Frá upphafi fundar þingflokks VG í dag.
Frá upphafi fundar þingflokks VG í dag. mbl.is/Ómar

Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs settist á fund í húsnæði flokksins við Aðalstræti í Reykjavík laust eftir hádegið í dag. Fram kom í Morgunblaðinu í dag, að aukinnar svartsýni gætti hjá viðmælendum blaðsins í gær um að einhver friðsamleg niðurstaða yrði á fundinum. 

Árni Þór Sigurðsson, starfandi þingflokksformaður, sagðistt þó ekki eiga von á miklum átökum á fundinum, en vitanlega myndu menn skiptast á skoðunum.

Hann var sá eini sem rætt var við sem var þessarar skoðunar, því augljóslega telja þeir sem styðja þann hluta þingflokks VG sem kenndur hefur verið við órólegu deildina að flokksforystan ætli sér að bregðast of seint við og gera of lítið til þess að breyta stefnunni í Evrópumálum, til þess að um slíkt geti orðið einhver sátt. 

Atli Gíslason kemur til þingflokksfundarins.
Atli Gíslason kemur til þingflokksfundarins. mbl.is/Ómar
Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG, kemur til fundarins.
Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG, kemur til fundarins. mbl.is/Ómar
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert