Vilja fund um söluna á Vestia

Guðlaugur Þór Þórðarson.
Guðlaugur Þór Þórðarson.

Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins hafa farið fram á fund í viðskiptanefnd Alþingis vegna sölu Landsbankans á Vestia.

 Óskað er eftir upplýsingum sem beðið var um  í ósvaraðri fyrirspurn frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni frá 18. nóvember á síðasta ári um verðmat á þeim eignum sem seldar voru frá Landsbankanum.  Einnig er farið fram á að fá að vita hvenær þessar eignir fara í opið söluferli.

Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins fara fram á að fulltrúar frá Landsbankanum og Bankasýslunni mæti fyrir nefndina.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert