Fái forgangsrétt til eigna Landsbanka

InDefence hópurinn á tröppum Bessastaða í byrjun síðasta árs.
InDefence hópurinn á tröppum Bessastaða í byrjun síðasta árs.

InDefence hópurinn vill að íslensk stjórnvöld geri kröfum um að nýjum Icesave-samningi verði breytt á þann hátt, að tryggt verði að íslenski innistæðutryggingasjóðurinn fái forgangsrétt til eigna úr þrotabúi Landsbankans.

Þetta kemur fram í umsögn um nýtt Icesave-frumvarp, sem InDefence hefur sent fjárlaganefnd Alþingis.

InDefence stóð fyrir undirskriftasöfnun á árinu 2009 þar sem forseti Íslands var hvattur til að synja Icesave-lögum, sem Alþingi setti,  staðfestingar.  

Í umsögninni um nýja samninginn, sem gerður var nú í desember, segir að hann feli í sér ýmsar úrbætur frá fyrri samningi. Helstu áhættu- og óvissuþættir séu þó enn til staðar frá fyrri samningum. Einnig verði að hafa í huga að lögmæt greiðsluskylda að baki kröfunum sé ekki fyrir hendi.

Helstu áhættuþættirnir lúti að gengisáhættu og áhættu á matsverði eigna þrotabús Landsbanka Íslands, þótt óvissa um virði eigna Landsbankans sé minni en áður. Auk þeirrar áhættu viti enginn raunverulega á þessu stigi hve langt sé í að greiðslur inn á höfuðstól skuldarinnar hefjist.

Þá segir InDefence, að við meðferð fjárlaganefndar á fyrirliggjandi frumvarpi sé algjört grundvallaratriði að farið verði ítarlega ofan í álit starfshóps fjárlaganefndar undir forystu Stefáns Más Stefánssonar lagaprófessors. Komi í ljós að áhættan sé viðunandi við að láta reyna á það grundvallaratriði hvort greiðsluskylda íslenskra skattgreiðenda á tugum milljarða sé yfirleitt fyrir hendi áður en sú greiðsluskylda er samþykkt með samningi, eigi það að vera fyrsti kostur íslenskra stjórnvalda að láta reyna á lögmæti krafnanna.

Sé það mat starfshópsins að áhætta af dómsmáli sé mikil og feli í sér verulega skerðingu á hagsmunum þjóðarinnar, megi mæta stærstu áhættuþáttum samningsins með þeirri breytingu, að hann kveði á um  að íslenski innistæðutryggingasjóðurinn hafi forgangsrétt til eigna úr þrotabúi Landsbankans.

„Hér er um að ræða réttmæta og eðlilega breytingu á fyrirliggjandi samningsdrögum, sem felur ekkert annað í sér en að samningaðilar fari að gildandi lögum og skráðum leikreglum evrópsku innstæðutilskipunarinnar sem allt Icesave málið byggir á. Þetta á að vera krafa íslenskra stjórnvalda ef gera á samning án þess að skorið sé úr um lögmæti greiðsluskyldunnar," segir í umsögninni.

InDefence hópurinn leggur jafnframt á það áherslu að áður en núverandi samningsdrög um Icesave verði afgreidd af Alþingi verði þau borin undir lánsmatshæfisfyrirtækin, til að full vissa fáist um það fyrirfram að lánshæfismat Íslands muni ekki lækka verði samningsdrögin staðfest. 

Umsögn InDefence

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert